Hvítir Hrafnar by Friðjón Ingi Jóhannsson published on 2022-02-27T18:19:02Z Set hérna inn þátt til gamans, sem ég tók upp við eldhúsborðið fyrir nokkru og sendi í hugmyndasamkeppni RUV, en reglulega er auglýst eftir hugmyndum um efni frá almenningi. Þáttinn nefni ég „Hvíta hrafna“ sem vísar til þess að spiluð er íslensk alþýðutónlist sem mjög lítið eða ekkert heyrist í okkar ágæta Ríkisútvarpi allra landsmanna. Þá reyni ég einnig að varpa ljósi á viðkomandi höfunda og flytjendur. Í þessum þætti tók ég fyrir níu lög með eftirfarandi höfundum og/eða flytjendum. Sigríður Laufey, Þorlákur Friðriksson (Lalli frá Skorrastað), Nefndin, Gréta Sigurjóns, Ýmsir flytendur, Ágúst Ármann, Sigþrúður Sigurðardóttir, Eyjólfur Ólafsson (Manni) og Alla Borgþórs. Þess skal svo getið að þessari fráleitu hugmynd að gera þátt með íslensku efni sem sjaldan eða aldrei heyrist á öldum ljósvakans var alfarið hafnað af RUV. Genre Entertainment