DÍSIR VORSINS by the_nightwolf published on 2016-03-23T22:08:35Z DÍSIR VORSINS Song & Lyric: Bjarki Árnason (3. may 1924 / 15. januar 1984) - - - Bráðum anda vorsins dísir djúpt og rótt dagarnir þeir lengjast nóttin flýr lofgjörð syngja fuglarnir af ljóðagnótt loftsins ilmur seiðir hreinn og nýr. Höfuð hneigja blómin móti blíðri sól blundar silfur dögg á gleym mér ei tilfinningar allar þær sem ástin ól eiga griðarstað hjá sumarþey. Þá skulum við koma út í kvöldgeisla flóð kyrrð og friður signa okkar fund sestu hjá mér vina mín svo saklaus og góð sælunnar við njótum þessa stund. Geisla fákar leika sér um loftin blá lognöldurnar kveða brúðarlag enginn skuggi fellur okkar ástir á eftir þennn fagra sumardag. Genre Folk & Singer-Songwriter