Spáðu Í Mig by TLX-542 published on 2018-01-20T18:04:20Z Spáðu í mig Björgvin Halldórsson. - - - - - kvöldin eru kaldlynd útá Nesi kafaldsbylur hylur hæð & lægð kalinn & með koffortið á bakinu kem ég til þín segjandi með hægð: spáðu í mig þá mun ég spá í þig spáðu í mig þá mun ég spá í þig. nóttin hefur augu eins og flugan & eflaust sér hún mig þar sem ég fer heimulega á þinn fund að fela flöskuna og mig í hendi þér spáðu í mig ... finnst þér ekki esjan vera sjúkleg & akrafjallið geðbilað að sjá ef ég bið þig um að flýja með mér til omdúrman þá máttu ekki hvá spáðu í mig ... & kvöldin eru kaldlynd út á Nesi kafaldsbylur hylur hæð & lægð kalinn & með koffortið á bakinu kem ég til þín segjandi með hægð spáðu í mig ... Megas Genre Country