Ofurlítill Friður

Folk & Singer-Songwriter

Comment must not exceed 1000 characters

OFURLÍTILL FRIÐUR
DÚI BEN

Dagur er liðinn og dögg skín á völl
dularfull blámóða sveipast um fjöll
Lækurinn hjalandi hoppar á stein
hjúfrar sig fugl á grein.

Þreyttur frá deginum hraða ég ferð
heim þig að finna svo glaður ég verð
njótum við saman við náttgala klið
næðis í kyrrð og frið.

Þegar húmið um hauður læðist
þegar hljóðnar í bæ og sveit
þar til dagsröndin fyrsta fæðist
fyrir þig sem ég vann mín heit

Ég skal vaka og við þig hjala
meðan vornóttin festir blund
hjá þér vil ég minn aldur ala
hverja einustu friðarstund_
- - - - -
Bjarki Árnason
3. maí 1924 / 15. janúar 1984

Seems a little quiet over here

Be the first to comment on this track